20.11.2011 18:50

Ótitlað

Hundasýningin var í dag, Tina fékk excellent og varð í 4ða sæti í opna flokknum. Hún sýndi sig vel, dillaði skottinu vel og brosti fallega til mín þegar ég stillti henni upp svo að dómarinn gæti séð hana emoticon
Við erum búin að eignast nýja tík, hún er algjört skott, hún er border terrier. Hún heitir í ættbók Bjarkar Blásól og við köllum hana Mía litla. Henni gekk líka vel á sýningunni en hún var sýnd í hvolpaflokki 4-6 mánaða og fékk frábæran dóm og dómarinn var mjög hrifinn af henni.

Hvolparnir dafna mjög vel, eru algjör matargöt og finnst gott að fá klapp og klór og okkur finnst voðalega gaman að veita þeim það emoticon

Mér hefur fundist erfitt að ná myndum af þeim sem "make-a sense" hehehe en ég náði loksins nokkrum þegar þeir sváfu en ég geri mitt besta áfram að ná fleiri og betri myndum.

Tina er byrjuð á námskeiði og heldur svo áfram eftir það á retrievernámskeið en hún elskar að vera labrador og er með sterkt sækieðli, sama á við um Önnu en hún fer í sama pakkann og Tina því hún er líka sterkur retriever og það verður gaman að fá að rækta það með þeim og vinna með þeim emoticon

Jæja ég veit ekkert hvað ég á að babbla meira í bili en hafið það sem allra allra best þangað til næst.
xx
Erla

Hér eru myndirnar af hvolpunum og ein af Míu litlu en hún fær svo sína eigin síðu hér bráðlega.


Mía litla <3


Skyr er holt :)
Skyr is healthy :)


og svooo gott 
and soooooo good 


svona er lífið, borða og svo bara sofa :P
this is life, eat and then just sleep :P


zzzZZZzzzzZZZZ


besti staðurinn til að lúlla, á hausnum á systkininu sínu 
The best way to sleep, on your siblings head 


gott að kúra saman 
cuddling, so sweet 


smá rumsk við þessa með myndavélina haha
interupt by the one with the camera

Njótið vel emoticon